Jæja það er svo löngu komin tími á nýja færslu... Allt fínt að frétta einsog alltaf nema það að ég er ekki enn búin að fá neina vinnu, ekki að ég hef ekki leitað mikið. Sótti um í sundlauginni og fæ að vita örugglega í dag eða á morgun hvort ég fæ hana eða ekki. Ef ég fæ hana ekki þá er ég að velta fyrir mér að fara á dalvík í fiskin. En svo verð ég að þjálfa göngukrakkana í vetur. ÞAð verður æðislega gaman. Það er nú örugglega ekki langt í að snjórin komi og maður geti farið á skíði og mig hlakkar svo til að fara á gönguskíðin en hlakka ekki jafn mikið til að fá kuldan:( Kristó er bara á fullu í skóla og vinna. hann fer 3 inneftir i skólan og vinnur svo 2 daga hjá gj smiðum í viku. var líka fyrir sunnan í viku að vinna frá morgni til kvölds. Ekkert smá duglegur. Og ég ömurleg ekkert að vinna bara heimavinnandi húsmóðir. Tók mig til um dagin og bakaði möffins og snúða hehe sem gekk bara mjög vel... Jæja þetta verður stutt í þetta sinn.... Ein mynd af mér og Kristó í vor:) Bless í bili
18. september 2007 klukkan 10:21
Elsa Guðrún Jónsdóttir 4 athugasemdir
Þann 12 ágúst vorum ég og Kristó búinað vera saman í 5 ár þetta er svo fljótt að líða að það er ótrúlegt.. En allavegana í tilefni dagsins ákváðum við að gera eitthvað saman og ákváðum við að labba útað vita. Því við höfðum gert það 2 áður og þetta var svona sérstakur staður fyrir okkur. Við hlupum og löbbuðum. Og við fórum alveg uppí dalin og það er slatta lengra en gestabókin... Við vorum búin að hita kakó og smyrja samlokur og þar lágum við heillengi. Og við trúlofuðum okkur:) :) eða Kristó bað mig svona eiginlega um að trúlofast mér og hann gaf mér grashring hehe svo hlupum við tilbaka og skrifuðum í gestabókina... Svo á seinasta laugardag fórum við og náðum í hringana sem við létum stebba í stúdíó 6 gera. Og við settum upp hringana fyrir framan akureyrar kirkju... Það er senmsagt allt gott að frétta af okkur. Erum búin að koma okkur svona næstum alveg fyrir í íbúðinni, orðið voða kósý ,bara nokkrar hillur sem á að setja upp. Kristó fer bara að byrja í skólanum, var að ná í stundaskránna í dag. og ég er bara að leita að vinnu ætla að reyna vinna mikið núna ef ég fæ einhverja vinnu. Reyna að safna smá penge... Já annars er allt fínt og ég nenni ekki að skrifa meira í bili.... var búin að setja nokkrar myndir frá hollandi og smá frá 5 ára afmæli okkar Kristós ELsa
23. ágúst 2007 klukkan 12:52
Elsa Guðrún Jónsdóttir 7 athugasemdir
Þið verðið að kíkja á þetta. Þau eru ekki eins fullkomin og maður heldur http://www.iwanexstudio.com/ þurfið að klikka á portofolio þarna fyrir ofan. svo verðiði að klikka á myndirnar og setja músina á þær til að sjá munin.
Elsa
15. ágúst 2007 klukkan 13:57
Elsa Guðrún Jónsdóttir 1 athugasemd
Er farið að hlakka til að komast burt:) það verður mjög gott. þótt ég sé að fara í rigningu hehe en já það er búið að rigna í hollandi seinustu 3 vikur er reyndar búið að spá smá sól núna um helgina en er svo spáð rigningu aftur. en þetta verður gaman með famelíunni. Ég og kristó förum með mömmu og pabba á eftir suður. Og svo er bara flogið snemma út á morgun... Já annars er allt fínt að frétta frá mér bara mjög skemmtileg helgi að baki, þurti reyndar að fara snemma heim af ballinu af einhverri ástæðu... En ég Alexandra og Rut kærastan kolla vorum saman allt kvöldið, voða gaman. Svo var bara legið allan sunnudagin fyrir framan sjónvarpið......... Fórum í bíó á þriðjudaginn með kolla og Rut á Die HArd 4 hún var mjög fín og Brucarinn mjög flottur:) nóg í bili... Elsa
05. júlí 2007 klukkan 10:40
Elsa Guðrún Jónsdóttir 2 athugasemdir
Já maður fékk bara nudd í vinnunni Ólöf Garðars kom og nuddaði okkur öll, var æðislegt fyrsta skipti sem ég fer í nudd. núna verð ég að panta mér nudd hjá Ásu, gera eina tilraun enn, reyndi nokkrum sinnum að fara til hennar í nudd og það var alltaf eitthvað að koma uppá.... annars er vinnan bara mjög fín mér líkar bara ótrúlega vel við mig og læri meira og meira... Svo fer að styttast í Hollandsferðina, það verður nú eikkað skrautlegt 32 manns saman að ferðast... en verður bara gaman. vona bara að það rigni ekki allan tíman... Blúsin er að byrja í dag, ætla að fara í kvöld því svava systir er að syngja og mér hlakkar ekkert smá til að sjá hana syngja á sviðinu, hún verður flottust en svo ætla ég bara á balliðá laugardagin ég á ekkert endalausan pening til að vera fara öll kvöldin... Já þa er þetta komið, stutt og laggott eheheh Kv ELsa komnar myndir í myndir:)
28. júní 2007 klukkan 18:42
Elsa Guðrún Jónsdóttir 4 athugasemdir
Já þá er margt búið að gerast hjá kellu síðan seinast hehe. Við fórum suður og það var ótrúlega gaman, mjög gaman á UÍ og Birna var bara flott. Svo bara fórum við á djammið ég og Alexandra eftir UÍ. Á laugardeginum var bara búðarráp og við fórum í keilu og svo fórum við öll 4 eða ég kristó, alex og höddi útað borða og á djammið á laugardeginum. Svo fór Kristó á deep purple á sunnudeginum og við keyrðum beint heim eftir þá. Svo var það bara að brasast í að flytja allt draslið heim sem var miklu meira en ég hélt. En við sóttum um í búð í sumar en fengum enga:( þannig núna er draslið okkar útum allt og við sofum útí sveit en spörum náttlega heilan helling á þessu. :) En samt ekkert gaman að flytja heim þegar maður er búin að vera að heiman... Svo eru miklar pælingar hjá mér um að fara á bifröst í viðskiptalögfræði haustið 2008 og þa að vinna og taka eitthvað í fjarnámi næsta vetur, en þetta gæti alveg breyst. en þá er nefnilega kristó búin með smiðin og þá getur hann farið að vinna á fullu þegar ég er í skólanum. En þetta kemur allt í ljós Já svo þessar fréttir um yasmin pillunna, allir orðnir þvílikt hræddir við hana sem er ski9ljanlegt væri það örugglega sjálf ef ég væri ennþá á henni. En þegar ég fékk blóðtappan í lungað þarna í mars þá sagði læknirin að það eru örfáar stelpur sem fá þetta og ég væri bara ein af þeim. en hann nefndi aldrei neitt um að þetta væri yasmin pillan sem væri orsökin það er bara getnaðarvarnapillan... En annars þá hringdi mogginn og stöð 2 útaf þessu og var þvílík keppni hver yrði fyrstur með fréttina... En svo er ég byrjuð að vinna í bankanum frá 9 til 5 og mér finnst það ótrúlega gaman. vinnudagurinn alveg flýgur áfram:) sem er nú bara gott en já annars þá langar mig svo í fótbolta langar alltaf, finnst svo leiðinlegt að við séum ekki með neitt lið hér á ólf. það hefði verið dáldið gaman:) Heyrðu ég set inn myndir mjög bráðlega var að reyna það um daginn en það var bara ekki að ganga. Heyrumst Elsa
07. júní 2007 klukkan 15:38
Elsa Guðrún Jónsdóttir 3 athugasemdir
það er alltaf svo gaman að fara suður... gera eikkað annað en að hanga á ól eða ak. Ég og Alexandra ætlum að fara suður annaðkvöld og svo koma kristó og höddi á föstudagskvöld eða um nóttina því þeir eru að fara keppa. Þannig við förum bara í búðir og dundum okkur við að punta okkur fyrir kvöldið. ætlum að vera svo sætar og flottar heheh segi sovna. en ég er að fara í strípur á eftir bara aðeins að bæta ljósu í rótina... Tanja kærastan simma var að byrja vinna á arte og ætla til hennar og svo í brúnkuklefa á morgun áður en við leggjum af stað:) var í dekri í gær hjá siggu snyrti, svava gaf mér gjafakort um dagin í bestu meðferðina alveg 1 og hálfur tími með nuddi og alles. en mér veitti ekkert af þessu því ég er ekki nógu dugleg að sjá um húðina á mér..... er ennþá að velta með mér í hvaða fötum ég á að fara langar bara í jólakjólnum mínum eða gamla kjólnum mömmu, hann er geðveikur er bara pæla hvort hann sé of fínn... hann er meira en 20 ára gamall og er æði.... held ég fari í honum... en já er ekki mikið annað að frétta... fer að vinna í bankanum 1 júní... það verður mjög fínt... blogga eftir helgi og set nýjar myndir. Allir að fara á ungfruisland.is og kjósa Birnu hún er ekkert smá sæt og gæti alveg unnið þetta vona allavegana að hún komist í sæti.... langaði að láta smá fylgja með sem örugglega allir eru búin að lesa áður en ég fæ bara tár í augun við að lesa þetta Strákur keyrir móturhjól með kærustuna sína aftaná í 90 km/t.
Stelpan : Geturu minnkað hraðan smá. ég er hrædd
Strákurinn : Nei þetta er gaman.
Stelpan : Nei, það er það ekki. Gerðu það, þetta gerir mig hrædda.
Strákurinn : Geturu tekið hjálminn minn og sett hann á þig? mér klæjar af honum.
Í blöðunum næsta dag : Móturhjól keyrði útaf veginum og klessti á hús því að bremsurnar voru virkuðu ekki. Tvær persónur sátu á, bara ein lifði þetta af.
Sannleikurin er sá að þegar þau voru komin niður hálfa brekkuna þau keyrðu, fann strákurinn það út að bremsurnar virkuðu ekki, en hana vildi ekki að stelpan mundi finna það út. Í staðin fékk hann hana til að segja að hún elskaði hann og bað hana um að knúsa hann í síðasta skipti áður en hann sagði henni að taka hjálminn hanns og nota hann sjálf svo að hún mundi lifa þetta af, þótt að hann vissi að hann mundi deyja.
23. maí 2007 klukkan 12:22
Elsa Guðrún Jónsdóttir 1 athugasemd
Núna er ég í vinnunni. í afgreðslunni á hornbrekku. Er eitthvað rólegt núna þannig ég ætla að henda inn einni færslu núna. Ég er eitthvað svo pirruð núna. á engan pening. og mig langar svo að fara versla af mér hausinn núna ehhe nei þegar maður er að fara til rvk þá langar manni að eiga pening. langar svoí ikea og versla og langar svo í fullt af fötum.... þetta er ömurlegt Og svo er ég bara búin að finta og fitna og er alveg einsog ég var. eða næstum buxurnar eru ekki orðnar þröngar en bara svona fínar mega ekki verða þrengri þannig nú verð ég að fara passa mig akkuru getég ekki bara verið einsog kristó borðað sem ég vil... þetta er svolítið pirrandi. Þarf eiginlega að reyna rífa mig upp klukkan 6 á morgnana ti l að æfa því ég er alltaf svo þreytt eftir vinnu... Jæja er hætt að tuða. Annars er ég alltaf að velta mér í hvaða fötum ég á að vera á ungfru ísland kannski ég fari bara í kjólin sem ég var í þegar svava gifti sig hann er finn og sumarlegur. mig er farið að hlakka til að fara til hollands, förum 6 júli og verðum í 10 daga með allri famelíunni minni eða um 30-40 manns. þetta verður fínt mig langar bara svo til solarlanda líka.... nenni ekki að skrifa meira í bili. Elsa
15. maí 2007 klukkan 10:18
Elsa Guðrún Jónsdóttir 5 athugasemdir
Jæja ég hef verið svo léleg í blogginu en ég reyndi um daginn og var búin að skrifa þvílíka textann sem hvarf svo bara og þá gefst ég alltaf upp...:)
En annars er allt fínt að frétta.*Það er bara ein sem fer frá Ungfrú Norðurlandi í Ungfrú Ísland, Birna Bolla og hún á eftir að standa sig svo vel. Ég ætla að fara suður og horfa á hana, þann 25 maí er farin að hlakka svo til. Hefði verið svo gaman að komast áfram en er samt ekkert sem ég er að svekkja mig á. Það verður fínt að vera áhorfandi niðrí salJ hehe*Búin í skólanum og við ætlum bara að vera á Ólafsfirði í sumar, er komin með nokkrar vinnur. Byrjaði í dag uppá elliheimili hjá gamla fólkinu sem er mjög fínt og verð eitthvað þar í sumar. Byrja svo í afgreiðslunni á heilsugæslunni á mánudaginn og verð eitthvað þar og svo er ég komin með smá í sparisjóðinum og verð örugglega mest þar í sumar. En ég er búin að ákveða að hætta í lögfræði og fara í viðskiptafræðina einsog ég ætlaði alltaf en gaman að vera búin að prófa þetta.*Vorum að kaupa nýjan bíl, við skiptum við Gylfa og erum komin á rosa kagga, Skoda Superb, mjög flottur. Það er einsgott að vinna eins og brjálæðingur í sumar hehe*Ætlum að reyna leigja einhverja litla ódýra íbúð hérna í sumar. Nenni ekki að vera búa inná mömmu og pabba erum líka með svo fullt af drasli. varð að hafa eina mynd mep síðan í fyrra sumar, mig er farið að hlakka svo til sumarsins:) fara í fjallgöngur og ferðalög :) kveðja Elsa
10. maí 2007 klukkan 23:36
Elsa Guðrún Jónsdóttir 1 athugasemd
jæja þá er kvöldið búið. Þetta var æðislegt kvöld í alla staði og finnst leiðinlegt að þetta sé búið. Þetta var svo ótrúlega gaman að vera svona fín og flott á aldrei eftir að sjá eftir að hafa farið í þessa keppni. Bara góðar minningar, búinað kynnast æðislegum stelpum og búin að léttast smá en það verður örugglega fljótt að koma aftur, var á subway fékk mér 12 tommu bát og 2 kökur og kláraði allt. og svo er náttlega nammi á eftir og svo ætluðum við örugglega að borða saman í kvöld stelpurnar og hittast En svo er einhver ráðstefna ídag og á morgun og ég er ekki að nenna að mæta á hana byrjaði 9 en ég ætla að mæta kl 2. Ætlaði að setja nokkrar myndir frá kvöldinu inn setti nokkrar i myndaalbúmið en það er mest bara myndir af mér:) á eftir að setja fleiri seinna:) Kv Elsa
31. mars 2007 klukkan 12:46
Elsa Guðrún Jónsdóttir 11 athugasemdir